Varmaland, Miðvikudagurinn 18 júlí 2007 klukkan 15:59Steinunn þ. Bjarnadóttir

Jæja þá þetta er í þriðja sinn sem ég reyni að skirfa hérna fjandans færslu!!
hætti alltaf þegar þetta þurkast út og fer í fílu!
Allavega það sem á daga mína hefur drifið er ekki mjög mikið, er bara alltaf að vinna og vinna hérna í sundlauginni, er orðin frekar sólsteikt á þessu en samt ágætt bara. Átti afmæli um daginn loksins orðin 16 ára það var nú bara fínn dagur fór í hádegina á kaffhús með Vildís tengdó og leyfa henni að hitta aðeins nöfnu sína, sátum í nokkrar mín á milli þess sem við eltum Vildísi því hún vildi alltaf vera í einhverjum dótabílum þarna í smáralindinni.. svo rölti ég aðeins um og hitt Kristínu og keypti mér 2 boliBrosandi svo pikkaði ég möggu upp og hún passaði meðan ég og Hákon fórum út að borða á Vegamót, þar var ég nú aldeilis sniðug sló tvær flugur í einu höggi fór út að borða og hitti SoffíuHlæjandi já svo um kvöldið kíkti ég aðeins á Sigrún mína sem var bara mjög gaman langt síðan ég hef séð hana...

Vildís er orðin alveg svaka dugleg að gera ALLT SJÁLF og talar og talar allan daginn rembist við segja frá öllu sem er að gerast og skilur alveg upp á hár hvað maður er að segja við hana  *Stolt* Brosandi 

Svo næstu helgi verður hestaferðin mín eða það dæmi ætlu sumsé að ríða inní Þverárrétt og grilla og eitthvað svona aldrei að vita nema maður opmi svo eitthvað öl, eða vínflöskur kanski baraHissa
Ég er alltaf að tala við ömmu steinun í gegnum tölvupóst hún býr á Kanarí og viti menn haldiðði að hún ætli ekki að kíkja heim í haust og hún sagði að það væri aldrei að vita nema hún stoppi kanski bara lengi, get ekki beðið eftir að hitta hana, hún hefur náttlega ekki séð helmingin af öllum þessum barna og barnabörnum sem hafa bæst við hérna á klakanumBrosandi
Svo er það ennþá óleyst ráðgáta hvað ég fer að gera í haust en það verður ekki fyrr en 1 okt því þá fær Vildís leikskólapláss, og svo ætla ég náttlega í leitirnar og eitthvað svona skemmtilegt í september.
Jæja er þetta ekki orðið ágætt bara í bili er að verða búin að skrifa ævisöguna hérna..
ókeibæ
Steinunn sundlaugarvörður og life saver. er sko nýbúin á skyndihjálparnámskeiði svo nú kann ég aldeilis vel munn við munn og hjartahnoð...

Tilgangslaus færsla:)Steinunn þ. Bjarnadóttir

jæja ætli við Vildís bloggum ekki smá í tilefni dagsins já þriðjudagur aldeilis merkilegur dagur!
Sit heima hjá mömmu með Vildís í fanginu hún getur ekki sofnað því hún skar sig á eldhúshníf, ég veit hvað þið hugsiðaha góð mamma klukkan orðin hálf eitt og ég bara að blogga meðan barnið skar sig á hníf. En það er ekki svo, hún skar sig meðan ég var  að vinna og svo er hún bara eitthvað voða spræk í augnablikinu því hún sofnaði aðeins áðan. Eníveis ég skal hætta að tala um egilega ekki neitt.
Er farin að vinna í sundlauginni á Varmalandi alveg brjálað að gera maður komu t.d alveg 10 mans í dag.
uuuu já hef voða lítið að segja enda átti þetta bara að vera ein lítil tilgangslaus færsla í tilefni dagsins sem er þriðjudagur að þessu sinni, fyrir alla þá fjölmörgu sem skoða síðuna mínaHissa
En já svo ætla ég að auglýsa hérna smá en það er hestaferd sem ég er að reyna að draga fólk í tékkið á http://blog.central.is/hestaferd2007 og lesið allt um máliðBrosandi
ærla að reyna að setja inn mynd af Vildísi eða einhverj það verður bara að koma í ljós  hvað ég geri allavega þá er ég í mömmu tölvu svo ég veit ekkert hvaða myndir eru til hér....

ok kann ekki að setja inn mynd nenni ekki að fikta meira ætla að fara að leggja mig og knúsa Vildísi mína
ókeibæ

útskrift, útskriftarferð og jarðarför!Steinunn þ. Bjarnadóttir

jæja þá er það næsta bloggsíða því ég tími ekki að borga fyrir hina því það er aldrei að vita hvað ég nenni þessu lengi...
Allavega þá er allveg hellingur að frétta!
í fyrstalagi þá varð ég stúdent 22 maí.Svalur jebb með hvíta húfu og allt.
athöfnin var klukkan tvö  í Háskólabíó og allt gékk bara vel það datt engin á sviðinu eða neitt (hefði samt alveg verið til í að sjá einhvern detta) já ég er vond. svo var myndataka og eitthvað vesen eftirá sko hópmyndin ég fór ekki í myndatöku ein þó það séu eflaust margir sem mundu vilja eiga mynd af bara mér.  Svo fór ég bara beinustu leið heim til pabba og hjélt smá veilsu þar fyrir útvalda!

23 maí fór ég með Vildísi uppí Borgarfjörð til mömmmu því hún átti að vera þar í pössun meðan ég og Hákokn fórum í sólbað í eina viku. Ekki á íslandi sko heldur skruppum við til spánarSvalur sem var voooða næs. allavega þá skilaði ég henni af mér seint um kvöldið og svo á leiðinni heim þá var ég komin uppí göng kl 00.10 og viti menn ég átti að snú við og fara Hvalfjörðin því göngunum lokaði klukkan 00.00 þá var ég brjál og keyrði fjörðin alveg á 170 eða næstum því!! (þorði því reyndar ekki alveg) svo komst ég loksins heim og pakkaði aðeins og fór svo bara í bælið.

24. maí fórum við svo af stað og allt fékk vel flugvélin hrapaði ekki eða neitt. Á leiðinni út sat ég við hliðinná sex ára stelpu sem lét einsog ég hafði þekkt sig í mörg ár alger dúllaBrosandi Þegar við lentum var fólk svo orðið mis drukkið en við förum ekkert nánar útí það, það seg gerðist á Spáni verður á spániÞögull sem gröfin múhahah en já við fórum í alla skemmtigarða sem við fundum og strákarnir fóriu í gókart og eitthvað svo var nottla bara drukkið og djammað öll kvöldin og farið á ýmsa skemmtistaði niðrí bæ. þetta var bara SNILLD í einu orði sagt og ég nenni ekki að skrifa um það hendi inn myndum við tækifæri.

Við lentum svo á aðfaranótt föstudags og fórum bara veint að sofa hérna í RVK. Og ætluðum að fara bara þegar við vöknuðum og ná í vildísi. En mamma kom í bæinn því afi (pabbi pabba) var orðin svo veikur og var komin á sjúkrahús, mamma fór beint þangað með stelpurnar með sér og ég hitti hana þar og vildísi mína sem ég var búin að sakna í viku. Við vorum á sjúkrahúsinu um 3 leitið og hittum afa í síðasta sinn því klukkan rúmlega sex sama dag fór hann til Guðs, vonandi líður honum vel núna, laus við kvalir og allt sem fylgdu veikindum hans. Hann fékk bráða hvítblæði sem greindist í honum á þriðjudag eða miðvikudag og á föstudeginum var hann dáinn. Mjög skrítið að hafa hann ekki í mataboðum og öllu svoleiðis hann kom í útskriftina mína og var reyndar frekar slappur og svo hélt hann uppá afmælið sitt á sunnudaginn þar á eftir og ekki grunaði mann að það væri síðasta veislan hans, en svona er lífið skrítið.

já þar hafið þið það eflaust eitthvað meira sem ég er að gleyma en ég skrifa það þá bara seinna, Vildís er búin að dunda sér við að gera nr. 2 í bleijuna svo ég held það sé best að ég fari og reddi því.

ókeibæ

Aðalvalmynd

Auglýsing

Könnun

ætlaru að koma í sund á Varmalandi í sumar??

Atburðarteljari

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Prófíll

  • Nafn: Steinunn þ. Bjarnadóttir
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Móðir og sundlaugarvörður:)
  • Hjúskaparstaða: upptekin!
  • Um mig: mamma segir að ég sé sæt og góð!